Aðgerðir og viðbrögð

Aðgerðir og viðbrögð stofnana og fyrirtækja í kjölfar hruns

6. október, kl. 13.00-16.30: Aðalbygging Háskóla Íslands, Lögberg, stofa 101.

Efnahagshrunið haustið 2008 hafði ýmsar afleiðingar í för með sér og kallaði fram aðgerðir og viðbrögð af ýmsum toga af hálfu fyrirtækja og stofnana hér á landi. Fjallað verður um hvernig fyrirtæki og stofnanir brugðust við með ýmsum aðgerðum og breyttum stjórnunarháttum í kjölfar hrunsins, bæði til skamms tíma og langs og hvernig lækkun launa dreifðist um samfélagið.

  • Gylfi Magnússon (Háskóli Íslands): Nefndu það, við eigum það !
  • Arney Einarsdóttir (Háskóli Íslands): Mannauðstengdar samdráttaraðgerðir í kjölfar hruns og í langvarandi kreppu
  • Katrín Ólafsdóttir (Háskólinn í Reykjavík): Launalækkanir í kjölfar hruns: Var konum hlíft?
  • Ásta Dís Óladóttir (Háskóli Íslands): Hafa aðferðir stjórnenda breyst eftir efnahagshrunið 2008?

Kl. 14.30-15.00 Hlé

  • Gylfi Dalmann Aðalsteinsson (Háskóli Íslands):
    Traust til stjórnenda í kjölfar efnahagshruns
  • Ingi Rúnar Eðvarðsson (Háskóli Íslands) og Guðmundur Kristján Óskarsson (Háskólinn á Akureyri): Útvistun og efnahagsþrengingar í þjónustufyrirtækjum
  • Sigrún Gunnarsdóttir (Háskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst): Hvernig nýtist Þjónandi forysta hjá sveitarfélögum í kjölfar hrunsins?
  • Eyþór Ívar Jónsson (Háskóla Íslands): Viðbrögð við krísu: Nýsköpun og sprotar

Málstofustjóri: Arney Einarsdóttir.