Martröð millanna

Óskar Hrafn Þorvaldsson. Martröð millanna. Reykjavík: JPV, 2010.

Efni: Útrásarvíkingurinn, milljarðamæringurinn og hrokagikkurinn Reynir Sveinn Reynisson finnst myrtur á hrottalegan hátt í heitum potti á ríkmannlegu heimili sínu. Fingurnir hafa verið klipptir af og fljóta í kringum hann – en það vantar þumalfingur hægri handar … Gunnar Finnbjörnsson og félagar í lögreglunni hafa fátt að byggja á og ekki bætir úr skák að gamall skólafélagi, Hörður Sveinsson ritstjóri, birtir afrakstur rannsóknarinnar jafnharðan í blaði sínu. Smám saman þrengist þó hringurinn. Hér segir frá sturluðum lífsstíl með tilheyrandi snekkjupartíum, kókaíni og fylgdarkonum, peningaaustri og lúxusmetingi, glannalegum viðskiptafléttum, ofsagróða og háu falli. Við kynnumst líka viðskiptum við rússnesku mafíuna og demantakaupum. Stíllinn er hraður og grípandi og meðal litríkra sögupersóna má nefna siðblindanbankamann, seinheppinn leigumorðingja, lesblindan útrásarvíking og vitgrannan súlustaðakóng.

Önnur umfjöllun: