Keisarakokteillinn

Ragnar Arnalds. Keisarakokteillinn. Reykjavík: Tindur, 2018.

Efni: Keisarakokteillinn gerist í fjármálahruninu haustið 2008. Friðrik stórkaupmaður hefur fjárfest af miklum dugnaði í hlutabréfum bankanna undanfarin ár ásámt vini sínum, Bjarti söngvara. En snögglega blasir við þeim sú grátbroslega staðreynd að bankarnir eru komnir í þrot og hlutaféð er orðið verðlaust. Þeir ákveða því í örvæntingu sinni og fjármálavandræðum að rétta við fjárhaginn með því að senda unga stúlku til Parísar til að sækja þangað mikið magn af fíkniefnum. Í fyrstu gengur allt að óskum…