Sýslumaðurinn sem sá álfa.

Sýslumaðurinn sem sá álfa. Reykjavík: Sögur, 2012.

Efni: Sýslumaðurinn sem sá álfa> er afar óvenjuleg og skemmtileg glæpasaga sem lætur hugmyndir um hversdagsraunsæi lönd og leið. Þar segir frá rosknum sýslumanni sem óvænt er falið að rannsaka bankahrunið á Íslandi. Í bráðfjörugum og allt að því súrrealískum söguþræði koma fyrir ólígarkar í Rússlandi, einsetumenn á Hvolsvelli, mafíósar í Ameríku, morðvargar í Þýskalandi og dularfullir bófar á Vík í Mýrdal. Ernir vann að bókinni síðustu mánuðina sem hann lifði og segir í tileinkun að hún sé “kveðja … til umheimsins sem ég ann svo heitt. Og vonandi vekur hún einhverjum bros og svolitla gleði”. Ernir K. Snorrason hafði áður gefið út ljóðabókina “Bölverkssöngva” 1976 og skáldsöguna “Óttar” 1977. Vöktu báðar mikla athygli.

Önnur umfjöllun: