Valkyrjur

Þráinn Bertelsson. Valkyrjur. Reykjavík: JPV útgáfa, 2005.

Efni: Þegar Freyja Hilmarsdóttir er myrt hverfur handrit að bók sem hún er að skrifa. Bókin heitir Valkyrjur og inniheldur berorðar lýsingar fyrrverandi eiginkvenna tveggja frægra manna á hjónaböndum sínum. Hér er um að ræða Magnús Mínus, eiganda Mínus-verslananna og Minus Group, og Kjartan A. Hansen, sendiherra og fyrrum fjármálaráðherra. Víkingur Gunnarsson og samstarfsfólk hans í Rannsóknarlögreglunni taka til við rannsókn málsins. En það gerir líka Elín Óskarsdóttir ríkislögreglustjóri sem vill gjarna finna þetta opinskáa handrit því að þar er sagt frá hinni umtöluðu rannsókn Efnahagsbrotadeildar á fjárreiðum Minus Group – og hvort sú rannsókn sé til komin vegna þrýstings frá forsætisráðherra landsins.

Ritdómar:

  • Bersteinn Sigurðsson. „Breytir tímar.“  Fréttablaðið 2. nóvember 2005, s. 75.
  • Skafti Þ. Halldórsson. „Mínusveldið.“ Morgunblaðið 8. nóvember 2005, s. 6.

Viðtöl: