Eiríkur Bergmann. Hryðjuverkamaður snýr heim. Reykjavík: Sögur, 2015.
Efni: Ekkert er alveg sem sýnist í þessari mögnuðu sögu Eiríks Bergmanns um >miðaldra mann sem snýr heim til Íslands í byrjun árs 2008 eftir að hafa þurft að flýja land löngu fyrr út af illskiljanlegum glæp. Hann reynir að rifja upp gömul kynni við vini og vandamenn og átta sig á heiminum sem er gjörbreyttur frá þeim heimi sem hann hvarf frá. Og reynist vera í þann veginn að hrynja. Vinátta, hugsjónir, æskan og sagan, minningar, skýjaborgir og loftkastalar, ástin og afkvæmin – allt kemur þetta við sögur í þessari leiftrandi skemmtilegu en þó svo djúpskreiðu bók.
Önnur umfjöllun:
- Friðrika Benónýsdóttir. „Hryðjuverk hjartans.“ Fréttablaðið 25. júní 2015, s. 40.
- Valur Gunnarsson. „Kveðjubréf til kalda stríðsins.“ DV.is 3. júní 2015.