Sigurðar saga fóts

Bjarni Harðarson. Sigurðar saga fóts: Íslensk riddarasaga. Selfoss: Sæmundur, 2010.

Efni: Sagan segir ættarsögu Sigurðar fóts sem fyrir sambland af kurteisi og klaufaskap lendir í að eignast viðskiptalíf heillar þjóðar og tapa því. Við sögu koma, miðlarar sem selja Alþingismenn á fæti, mafíóósar sem sulta kaupfélagsstjóradrengi ofan í dósir, bísnesmenn sem ekki kunna að reikna, málstola heimasæta sem óvart verður framsett eins og bedfordbíll, skemmtanaglaður prestshundur, guðsmenn, dópistar og hrekklausir bankastjórar. 

Önnur umfjöllun: