Ferðamannalandið Ísland? – nýr veruleiki eftir hrun
6. október, kl. 13.00-14.30: Aðalbygging Háskóla Íslands, stofa 052.
Hrunið hafði gagnger áhrif á samfélag og hagkerfi Íslands. Í andrúmslofti sem markaðist að leit eftir fótfestu í umróti fékk ferðaþjónusta áður óþekkta athygli sem ein megin tekjulind erlends gjaldeyris fyrir þjóðarbúið. Á árunum eftir Hrun, sérstaklega eftir Eyjafjallajökulsgosið hefur ferðamennska á Íslandi sprungið út. Að einhverju leyti má segja að Ísland sé orðið ferðamannaland. Í þessari málstofu munu frummælendur fjalla um tengsl Hrunsins við ferðamannalandið Ísland frá ólíkum sjónarhólum. Sjónum verður beint að breytingum á stöðu ferðaþjónustunnar, upplifun fólks af vaxandi ferðamennsku og að nýjum veruleika ferðamála eins og hann birtist í dag og þeim áskorunum og möguleikum sem í honum býr.
- Gunnþóra Ólafsdóttir (Ferðamálastofa Íslands): Í auga stormsins – gildi ferðalaga.
 - Gunnar Þór Jóhannesson (Háskóli Íslands): Blessað Hrunið! Um veruleika ferðamála
 - Eyrún Jenný Bjarnadóttir: (Rannsóknamiðstöð ferðamála): Er allt í klandri í ferðamannalandi?
 - Magnfríður Júlíusdóttir (Háskóli Íslands) og Íris Hrund Halldórsdóttir (Háskóli Íslands): Erlent vinnuafl til bjargar?
 
Málstofustjóri: Gunnar Þór Jóhannesson (Háskóli Íslands).

