Þórarinn Leifsson. Bókasafn ömmu Huldar. Reykjavík: Mál og menning, 2009.
Bókasafn ömmu Huldar kom út árið 2009 og er vísindaskáldsaga fyrir börn. Þar segir frá Albertínu sem býr í bókalausum heimi þar sem Gullbanki ræður ríkjum og fullorðið fólk hverfur sporlaust. Dag einn birtist tröllkonan Huld með risastórt bókasafn og hættulega þekkingu og ekkert verður sem fyrr.
Önnur umfjöllun:
- „Margir tengja Hávar við Davíð.“ DV 2. nóvember 2009, s. 30.
- Ólafur Guðsteinn Kristjánsson. „Saga fyrir börn í nútíð jafnt sem þátíð.“ Morgunblaðið 5. nóvember 2009, s. 37.
- Páll Baldvin Baldvinsson. „Tröll hafi þig.“ Fréttablaðið 9. nóvember 2009, s. 35.