Stella Blómkvist. Morðið á Bessastöðum. Reykjavík: Mál og menning, 2012.
Efni: Á nýársnótt 2009 hittir lögfræðingurinn Stella Blómkvist lettneska nektardansmey sem hefur áhyggjur af vinkonu sinni sem virðist gufuð upp. Þegar Stella blandar sér í málið hverfur sú stúlka líka. Á Litla-Hrauni situr litháískur dópsmyglari sem segist engin tengsl hafa við Ísland en er með nafn Stellu skrifað á miða. Eftir forsetaveislu á Bessastöðum finnst illa farið lík þekkts fjármálamanns við altarið í kirkjunni. Stellu grunar að valdamiklir vinir hans viti meira um málið en þeir vilja kannast við. Og á Austurvelli magnast búsáhaldabyltingin … Stella Blómkvist er söm við sig, eitilhress og harðsoðin, ratar vel um undirheima samfélagsins jafnt sem krókaleiðir valdakerfis og fjármálaheims og tekst óhrædd á við andstæðinga með spakmæli mömmu gömlu á vörunum.
Önnur umfjöllun:
- Páll Baldvin Baldvinsson. „Fastir liðir.“ Fréttatíminn 13. apríl 2012, s. 34.
- Anna Lilja Þórisdóttir. „Þú getur miklu betur, Stella Blómkvist.“ Morgunblaðið 17. apríl 2012, s. 31.
- Kolbeinn Óttarsson Proppé. „Íslenskur Morgan Kane með píku.“ Fréttablaðið 30. apríl 2012, s. 20.