Ævar Örn Jósepsson. Önnur líf. Akranes: Uppheimar, 2010.
Efni: Aðfaranótt páskadags 2010 fannst Erla Líf Bóasdóttir í blóði sínu undir kirkjuvegg í Reykjavík, vafin í hvítt lín. Hún hafði verið stungin ellefu sinnum. Rúmu ári áður, í janúar 2009, varð hún fyrir hrottalegri árás þriggja grímuklæddra manna eftir að hafa dansað við eldana á Austurvelli við taktfastan undirleik búsáhalda og byljandi trommuslátt langt fram á frostkalda nótt. Katrín stýrir rannsókn málanna og á afar bágt með að trúa að engin tengsl séu á milli þessara tveggja grimmilegu árása á Erlu Líf. Það reynist henni þó allt annað en auðvelt að sýna fram á þessi tengsl og finna hina seku, ekki síst af því að almenna rannsóknardeildin er í upplausn vegna fjarveru Stefáns, sem ekki kemur til af góðu. Árni er í feðraorlofi og karlinn Guðni reynist Katrínu verri en enginn þegar hann verður sjálfur miðpunktur rannsóknar á sóðalegu morði í innsta hring undirheima Reykjavíkur.
Önnur umfjöllun:
- Friðrika Benónýsdóttir. „Af skunkum og svörtum englum.“ Fréttablaðið 19. nóvember 2010, s. 66.
- Páll Baldvin Baldvinsson. „Kötta kjaftæðið.“ Fréttatíminn 3. desember 2010, s. 56.
- Sigurður Ólafsson. „Lygilegur veruleiki.“ Bókmenntir.is nóvember 2010.
- Steinþór Guðbjartsson. „Hnútarnir ekki rétt hnýttir.“ Morgunblaðið 18. desember 2010, s. 56.