Bragi Ólafsson. Maður að mínu skapi. Leikstjóri: Stefán Jónsson. Reykjavík: Þjóðleikhúsið, 2013.
Efni: Fræðimaðurinn Guðgeir Vagn Valbrandsson er í þann veginn að leggja lokahönd á safnrit með fleygum orðum. Vinur hans Klemens Magnason, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, hyggur á endurkomu í stjórnmálin eftir að hafa neyðst til að segja af sér embætti. Hvorugan
þeirra gæti grunað að líf þeirra muni breytast vegna hreingerningarkonunnar á heimili Guðgeirs sem þekkir leyndarmál þeirra beggja. Verkinu var í kynningu Þjóðleikhússins lýst sem meinfyndnu verki um uppblásna oflátunga, liðtæka lærisveina, hatursfulla undirmálsmenn og sakleysingja sem eru ekki allir þar sem þeir eru séðir.
Umfjöllun:
- Bragi Ólafsson. „Maður að mínu skapi.“ Fréttablaðið 27. september 2013, s. 14.
- Jón Viðar Jónsson. „Gönuhlaup á stóra sviðinu.“ Fréttablaðið 17. september 2013, s. 30.
- Sigurður Valgeirsson. „Leikur með klisjur?“ Morgunblaðið 21. sepember 2018, s. 54.
- Silja Björk Huldudóttir. „Þeir eru skemmtilegar andstæður.“ Morgublaðið 13. september 2013, s. 48.
- Símon Birgisson. „Eldfimt þjóðfélagsástand.“ DV 11. september 2013, s. 22.
- Símon Birgisson. „Náhirðin fær á baukin.“ DV 16. september 2013, s. 23.
- Þorgerður E. Sigurðardóttir. „Maður að mínu skapi.“ RÚV 17. september 2013.