Jón Bjarki Magnússon. Lömbin í Kambódíu (og þú). Reykjavík: Útúr, 2011.
Efni: Lömbin í Kambódíu (og þú) er fyrsta ljóðabók Jóns Bjarka Magnússonar. Kambódía er eini hnötturinn sem vitað er til að líf þrífist á. Umhverfis Kambódíu liggur þunnt lag lofttegunda, sem samanstendur að mestu leyti af köfnunarefni og súrefni. Fyrir nokkrum milljónum ára er talið að kambódískur api hafi stökkbreyst og öðlast þann hæfileika að geta staðið á tveimur fótum. Síðan Kambódía myndaðist hefur hún þróast stöðugt, og standa nú eftir litlar sem engar leifar af upphaflegri ásýnd hennar.
Önnur umfjöllun:
- Bergsteinn Sigurðsson, „Útúrdúrar frá Útúrdúr.“ Fréttablaðið 26. nóvember 2011, s. 68.
- Börkur Gunnarsson, „Frá blakkáti í Moskvu til skjálfta á Vesturgötu.“ Morgunblaðið 28. nóvember 2011, s. 28.
- Friðrika Benónýsdóttir, „Ekki vekja dansarana.“ Fréttablaðið 27. desember 2011, s. 32.